hhmmm...
KNÚS!
holaaaaaaa
Lífid gengur nú bara sinn vanagang, heima er allt eins, skólinn er alltaf jafn yndislegur...
Ég er ad skemmta mér svo vel og er búin ad eignast vini sem ég veit ég á alltaf eftir ad eiga. Daviana er án efa ordin langbesta vinkona mín hérna. Og líka önnur í skólanum sem heitir Sara, sem er btw ad fara ad fá sér kött sem hún aetlar ad nefna KISA! "svo hún minni mig alltaf á thig" =) saett!
Skólinn búinn eftir 3 vikur og thá bara beint til Córdoba, Sevilla og Cádiz ad dansa Flamenco og taka upp andalúsíuhreiminn =)
Ég MUN láta myndir inn frá thví, ae promiss.
Um daginn fór ég í skólaferdalag til Tarragona, Barcelona, Zaragoza, Burgos og León. Thad var fínt, ekkert skemmtilegasta fólk í heimi og löng löng löng rútuferd en thad er alltaf gaman ad sjá nýja stadi.
Í dag er 30 stiga hiti en á morgun er spád rigningu...thetta er ekkert skárra en á Íslandi skal ég segja ykkur.
72 dagar/rúmir 2 mánudir/sirka 10 vikur eftir ! Erudi ordin spennt?
Ég er ordin voda spennt ad sjá ykkur öll krúttin mín.
kossar og knús!
hmmm
Madríd var aedi.
Ég var mjög hrifin af borginni sjálfri og skemmti mér svo, svo vel.
Ég fór med spaenskukennaranum mínum Melisu sem er 28 ára og afskaplega svöl, og vid gistum hjá fraenku hennar og kaerastanum Roberto frá Ítalíu sem er einn indaelasta manneskja sem ég hef á aevi minni kynnst og eldadi pasta dag hvern. Thau kenndu mér öll svo mikla spaensku og létu mér lída eins og parti af hópnum, en ekki eins og 17 ára útlendingi =)
Ég veit ekki hvad oft Melisa sagdi vid mig "núna er ég ekki kennarinn thinn, heldur vinkona thín!!", ekki thad ad hún vildi ekki kenna mér (hún kenndi mér ekkert smááá mikid) heldur vorum vid bara ad tala um allt eins og vid vaerum vinkonur. Thad var aedi.
Vid fórum á 3 og hálfstíma söngleik, og ég grét í fyrsta skipti á söngleik...og ég hef ekki farid á ófáa. Hann var dásamlegur.
Vid misstum af flugvélinni heim(ekki spurja af hverju) svo vid vorum einn dag lengur.
Ég reyndi ad koma mér pínu inní spánska pólitík sem gekk svona, saemilega.
Ég kynntist Madríd svona ágaetlega á 6 dögum thótt hún sé mjög stór.
París! hmm...
Ég vard ekki ástfangin af París. En ég skemmti mér samt vel. Og skodadi ALLA París og ALLA túristastadi sem haegt er ad skoda. Ég er ekki ad grínast. Ef thid gúgglid paris tourism thá get ég fullvissad ykkur um ad ég er búin ad skoda allt sem kemur upp. Haha. Thad sem stód uppúr er samt mjög týpískt en dagsatt: Effelturninn og Disneyland! =D og reyndar Louvre...en vid höfdum svo lítinn tíma. Og vid fórum líka á eitt gedveikt safn um arabíska heiminn! Thad var svo gedveikt!
hmm...held thetta sé allt meira og minna.
Annars er ekkert annad ad frétta. Fór og heimsótti Flo og vid fórum á ströndina thar sem familían hennar á hús...nei sorry, HÖLL. Djók, bara mega fancy hús. Thau eru svo indael fjölskyldan hennar. Ég er öfundsjúk! Ne, bara ánaegd ad hafa kynnst theim =)
Svo er ég bara búin ad vera ad hanga med spánverjunum mínum...
Davi kemur heim frá New York á morgun, ég sakna hennar svo.
Og ég er ordin ansi spennt fyrir heimkomunni =) en aetla samt sem ádur ad nýta mér thennan litla tíma sem ég á eftir! 3 mánudir eh!!
Í dag er mánudagur og skólinn byrjar á morgun...
Módir mín er ad hlusta á merengue (minnir á salsa) og undirbúa íthróttatíma thar sem hún kennir merengue...mjög töff.
Held thad sé ekkert meira...fer líka ad snaeda kvöldverd innan skamms...
kossar og knúúússss
BLOGG
.......................skólinn!!
Skólinn minn heitir einfaldlega "Sar". Sem mér finnst persónulegra miklu ljótara nafn heldur en Rosalía de Castro. Hann er líka miklu ljótari ad utan en Rosalía.
En hann er miiiiiklu skemmtilegri! Ég var svo gudvelkomin frá fyrsta degi og mér lídur svo vel. Kennararnir eru nánast allir yndislegir og ég er strax búin ad eignast heilan helling af vinum og kunningjum. Fyrstu vikuna eignadist ég strax vinkonu sem ég hitti naestum á hverjum einasta degi =) Hún heitir Carlota og aetlar ad reyna ad koma til Íslands í sumar! (hún var ad hugsa um thad ádur en hún kynntist mér) Svo á ég 2 adrar svona bestu og thaer heita Sara og Denise (sem er hálf andalúsísk mmmm). Ég á líka hommavin sem heitir David og er ágaet blanda af gothara og emo. Gaman ad thví =) svo á ég nóg af kunningjum sem ég tala vid daglega.
Í thessum skóla eru allir miklu opnari og allt annad andrúmsloft einhvern veginn.
Ég er í bekk med 17 ödrum stelpum og ég held vid séum 4 eda 5 sem erum 17 ára. Híhí. Thaer eru allar í kringum tvítugt sem er aedislegt.
Thar sem thetta er eini skólinn hérna sem er med listabraut eru anestum allar bekkjarsystur mínar frá litlum thorpum hérna í kring og tala sumar thar af leidandi ekta fjalla-gallísku! Haha. Ég er ekki eins feimin vid ad tala gallísku lengur :)
Nóg um skólann!
Florence!!
...er í Vigo sem er í adeins 2tíma fjarlaegd frá Santiago.
Ég heimsótti hana á laugardaginn, thad var svo dásamlegt ad sjá hana aftur =)
Ég er alltaf meira og meira med Daviönu (systur Emily) og hennar vinum og eru sumir ansi öfundsjúkir....
Á fimmtudaginn er ég ad fara til Madrídar med spaenskukennaranum mínum(er í akademíu ad laera spaensku) sem er 28 ára og ein skemmtilegasti spánverji sem ég hef hitt. Ég verd thar thangad til á mánudaginn í íbúd hjá fraenku hennar sem er ad laera thar med ítalska kaerastanum Roberto:)...get ekki bedid!
Ég er vodalega ánaegd thessa dagana.
Mér hlýnar um hjartaraetur í hvert skipti sem ég segist tala spaensku.
Og thad er svo gaman ad eiga alvöru spaenska vini :)
Thessa dagana rignir útum allan Spán...nema í Galiciu! Hér er hitinn yfir 20 grádunum dag hvern...og thad er febrúar!
Medan ég man, svör vid spurningunum frá Jóku!!:
-Íslenskur saltfiskur er sá besti! get ekki sagt annad.
-Spaenskir unglingar....ég gaeti skrifad ritgerd um spaenska unglinga!
Ég skal halda fyrirlestur thegar ég kem heim fyrir thig :)!!
Ég gleymdi alltaf ad segja frá danstímunum mínum....Ég er semsagt ad aefa Flamenco (sem er svoooo erfitt!) og Reggaeton :) Reggaeton thykir ekkert vodalega smekklegt...en mér finnst thad aedislegt. Ég vaeri helst til í ad fara í fleiri tíma og vera tharna á hverjum degi. Ég hef ekki dansad í svo langan tíma og thad er eitt af thví skemmtilegasta sem ég geri :)
mér er kalt á puttunum svo ég aetla ad haetta. ég skal láta inn myndir á morgun :)
tíhí
ég er thessa dagana ad paufast vid ad láta myndir inná myspace og um leid og ég er búin ad thví laet ég thaer inn hérna ásamt bloggi.....=)
ó mig auma.
Skólinn er frábaer, kennararnir allir mega naes, ég er bara í stelpubekk og fögin eru ekkert smá naes. Segi betur frá honum í naesta bloggi.
Florence farin frá Santiago og thad er búid ad banna okkur öllum ad hanga saman.
Ég fór semsagt á fund med Söruh og trúnadarmanninum hennar thar sem minn er svo upptekinn bara ALLTAF. Hennar dvöl í Sudurafríku í fyrra var náttúrulega fullkomin. Hún byrjadi á tvhí ad drulla thví yfir mig hvad ég hefdi átt ad vera búin ad eignast vini og vera meira med fjölskyldunni og hvad spaenskan mín aetti ad vera ordin betri og ég reyndi ad útskýra fyrir henni allt med skólavesenid hvad enginn taladi vid mig og ad famlían mín er aldrei heima og brósi alltaf laerandi og hún fann alltaf eitthvad á móti thví. Ég sem hélt ad spaenskan mín vaeri ordin svo gód, Florence er svo langbesta vinkona mín og ég virkilega REYNDI allt í hinum skólanum ég meira ad segja skipti um skóla sjálf ég gerdi allt í sambandi vid thad sjálf og á medan allt thetta hrundi yfir mig fór ég náttúrulega ad hágráta, ég er nú meiri hálfvitinn ég er búin ad gráta stanslaust í 3 daga, thá alltíeinu sagdi hún mér hvad ég vaeri allveg ad reyna og blablabla og ég veit ekki hvad....
Mér lídur svo fáránlega illa med sjálfa mig og mér lídur svo ótrúlega einni.
Sarah,Kelly og Emily eru ekki alvöru vinkonur thótt ég hangi mikid med theim.
Florence er farin.
Bródir minn hefur lent í ansi miklu svona ekki frekar skemmtilegu en samt segir hann alltaf ad honum finnist annarra manna vandamál ekkert minni. Svo alltaf thegar ég tala vid hann fae ég bara "pff thetta er ekki neitt midad vid mig" "ef bara thetta er ad tha ertu heppin" audvitad er ég heppin en ég er bara hérna í 10 mánudi og ég nenni ekki einhverju drama og audvitad vil ég ad allt gangi vel. Ég er búin ad vera hérna í naestum 5 mánudi og alltaf bídandi eftir betri tíma. Laugardagurinn var besti dagurinn minn á Spáni hingad til og ég virkilega hélt ad thetta vaeri allt ad koma en nei. Thetta er svo týpískt allt saman og mig langar satt ad segja bara ad taka naestu vél heim.
Myndir og dramatík

Gamlárskvöld!

vid vorum 15 talsins

Ég, brósarnir mínir og fraendsystkini

Kissuber frá Chile og arabísk súkkuladistykki sem eru köllud túrrón en á víst ad vera spaensk nú til dags :)

Dani bró, Álvaro & Marina systkini, ég, Laura & Miguel systkini og Pablo brósi minn.

Familían mín =D

Ég, Flo og Emily.

Sarah og ég

eftir nýársnótt fara allir og fá sér "chocolate con churros" í morgunmat. Heitt súkkuladi med ...jii ég veit ekki hvernig ég gaeti thýtt thetta. Mér fannst thad allavega ekki gott. Litu út eins og Vöfflustangir en brögdudust eins og sykur. ojaeja.

Analía á skautum :)
Já kaeru börn. Ég tók thá skemmtilegu ákvördun ad reyna ad skipta um skóla. Og thad tókst. Ég er svo stolt af mér, ég fór sjálf uppí skólana báda, minn og thann nýja, og útskýrdi mál mitt mjög ítarlega, ad ég aetti ekki vini blablabla, ad ég skilji ekki bofs í lífefnafraedi o.sv.fr. Og á midvikudaginn get ég byrjad =). Ég er ad fara í sama skóla og Emily en ekki vegna thess ad hún er thar, vegna thess ad thar er eini menntaskólinn í Santiago med listabraut. En ég tharf samt líka ad taka grunnfögin gallísku,spaensku,ensku,heimspeki og sögu. En mér líst vel á thetta og ég er med góda tilfinningu fyrir thessu ef ég á ad segja satt. Thad er pínu ógnvaenlegt ad byrja allt uppá nýtt en ég mun ekki thrauka í gamla skólanum. Thótt hann sé í midbaenum og í 10.mín. fjarlaegd frá húsinu mínu og afskaplega frídur ad utan...thá bara get ég thetta ekki. Seinasta daginn minn var ég líka alveg viss, stelpa í bekknum mínum sem er búin ad vera mega naes vid mig sagdi vid mig "ohh ég vil ekki ad thú farir, thótt vid hefdum aldrei talad saman á ensku thá hefdi ég viljad aefa enskuna mína á thér! Thid getid rétt ímyndad ykkur daudalúkkid sem ég gaf stúlkunni. Spaenskukennarinn minn kalladi mig líka "aej thú hvad ertu finnsk? ensk?" Ég horfdi líka á hana eins og hún vaeri hálfviti thangad til einhver sagdi íslensk. Ég komst einnig ad thví ad Rosalía de Castro er erfidasti menntaskóli í Galiciu svo ekki nema VON ad ég eigi ekki vini thví thau eru laerandi allan daginn.
En svo eru sumir sem vilja alls ekki ad ég fari =)....:
http://www.fotolog.com/aniuska_l0ka/38015518
Thad er fáranlega erfitt ad thýda textann fyrir nedan myndina ordrétt en ég reyni. Hann er svo krúttlegur!!
ég á eftir ad sakna thín mikid.
í dag er fyrsti dagurinn í skólanum, shit, tharf ad vakna aftur snemma (og eitthvad í sambandi vid kennarana sem eg skil ekki, híhí.)
Samt heppni ad í dag komu ekki 2 kennarar thannig ad vid misstum 2 tíma. Ég og Margrét aetlum á París (kaffihúsid okkar) og hún segir mér fréttina og ég er leid thad sem eftir er af deginum...hún aetlar ad fara frá okkur í annan skóla.
Fyrir mér ertu mjög sérstök, thessa fyrstu tvo mánudi thótti mér strax vaent um thig! Thú varst med mér í gegnum mín verstu augnablik thangad til í dag, og í tíma vorum vid alltaf saman, og segdu mér nú, hvad mun ég geta gert án thín?
Ég mun thurfa ad fara meira heim til ykkar Dani til ad sjá thig eda thad ad vid förum saman í raektina, sem betur fer búum vid líka nálaegt hvorri annarri.
Núna er ég svo leid ad thú aetlir í annan skóla, ímyndadu thérthegar thú ferd til Íslands..Ég myndi svo vilja thad ad thú myndir skipta um skodun og halda áfram í bekknum en okei ég skil thig og er thér mjög sammála!
Ég á samt eftir ad sakna thín svo mikid, thegar ég er ekki í tíma med hverjum á ég thá ad fara á París?
Ég vona ad thú munt heimsaekja okkur eitthvad..skrópadu í tíma eins og thú gerdir svo oft hér haha...(lífefnafraedi á gallísku já mer fannst hún ekki skemmtileg =)!!)
Ad lokum...eitthvad sem ég skil ekki...tíhí
Ég vil bara segja thér ad gleyma thví aldrei ad ég elska thig, thú munt alltaf eiga hérna eina vinkonu , thú getur hringt í mig thegar thú vilt, hvaenaer sem er, ég mun vera hérna fyrir thig.
É.G.E.L.S.K.A.T.H.I.G
Saett...? eda saett??
Jaeja. Ég er í fríi thangad til á midvikudaginn og ég veit satt ad segja ekkert hvad ég get gert. Einhverjar hugmyndir?
stutt blogg
Gledilegt nýtt ár!
Takk takk og aftur takk fyrir allar dásamlegu jólagjafirnar !
Áramótin voru án efa besta nóttin hingad til á Spáni. Ég fór í mat til ömmu og afa thar sem nánast öll aettin var saman komin. Svo vorum vid komin til Santiago um 2leytid og thá hitti ég Davi systur Emily og hennar vini og thad var dansad fram á raudanótt...
Ég veit ekki hvort thid kannist vid hefdina ad ádur en klukkan slaer 12 eru bordud 12 vínber fyrir hvert klukkuslag med sirka 3 sekúndna millibili (ég vona svo innilega ad thid hafid skilid thetta) og ég var búin ad spá thví ad ég myndi ná 5 berjum en viti menn, ég nádi theim öllum :D nú fae ég lukku í 12 mánudi.
Ég er á kafi í thví ad láta myndir á myspace sem ég copya sídan hérna inná...en thaer eru fleiri en 500 alltíallt svo thad á eftir ad taka thónokkra daga !
Sarah gisti hjá mér í gaer og vid horfdum á The holiday á ensku...thad var frekar dásamlegt ad sjá mynd á ensku eftir svona langan tíma...![]()
Ég hef ekki hugmynd hvad ég get gert i dag....
Af hverju lenti ég ekki á Kanaríeyjum? Hér er haglél og ískalt.
Mér finnst frábaert ad fyrrverandi skiptinemar eru ad lesa bloggid mitt :D
Annars er ekkert annad ad frétta..mér lídur alveg eins bara.
¿Var Spánn kannski ekki landid fyrir mig?
Spyrjum ad leikslokum eins og mamma segir alltaf ![]()
knús














